Trallall
26.09.2005 09:40:09 / jonb

busy

Það er búið að vera svo mikið að gera í skólanum hjá mér að ég hef ekki haft tíma í að lesa uppáhalds bloggsíðurnar mínar.... hvað þá blogga sjálfur....... var til 1 í nótt að klára eitthvað leiðinda verkefni og á síðan að skila tveimur öðrum í dag..... ekki að meika þetta.... en góðu fréttirnar eru þær að í morgun mætti ég á réttum tíma í fyrsta tíma, klukkan 8:15... þetta þykir kannski ekki merkilegt fyrir marga en ég held að ég hafi ekki mætt í skólann áður en fyrsti tími byrjar kl. 8 síðan í Árbæjarskóla þegar maður gat labbað í skólann.

Málið er bara ég er hata tíma klukkan 8.... klukkan 9 er ég orðinn fínn.... ekki 8..... þá er ég sofandi.... eina sem er vakandi í líkamanum mínum þá eru augun.....og kannski nokkrar taugafrumur..... ekki heilinn..... ekki einu sinni nálægt því. Þegar ég var að bera út Moggann í denn þróaði ég nefnilega tækni svo ég gat borið út án þess að þurfa að vakna.... bara stóð upp, fór í föt og labbaði beint út með blöðin... kom síðan heim klæddi mig úr og fór aftur upp í rúm og hélt áfram að sofa eins og ekkert hafði í skorist. Síðan þegar ég vaknað kannski hálftíma seinna man ég ekki einu sinni eftir því að hafa borið út.

Annars er boltinn núna búinn í bili þannig að maður græðir smá tíma og getur þá farið að gera eitthvað annað en að læra eða boltast..... kannski hitt fólk eða eitthvað.....veit ekki um eina mynd sem er í bíó.... veit ekki hvað er að gerast í sjónvarpinu.....veit varla hvaða sjónvarpsstöðvar eru í boði hérna lengur..... veit ekki hver staðan er í enska boltanum..... veit bara ekkert.... eina sem er í hausnum á mér núna eru diffur jöfnur og c++ kóði.

» 76 hafa sagt sína skoðun

28.07.2005 12:59:52 / jonb

Harðsperrur í nebbanum

Jæja tími kominn á færslu.

Af mér er helst að frétta að ég er búinn að vera með kvef í bland við frjókornaofnæmi síðust 3 daga þannig að álagið á nefið er búið að vera mikið og meðalsnýtur hafa verið ca. 7,8 á klukkutíma.

Er fínn í dag en eftir allt þetta álag er ég held ég með harðsperrur í nefinu.... alla vega er ég mjög aumur í því.... kannski er það bara brotið eða eitthvað.... eins og ein stelpa sem ég þekki sem æfir frjálsar, hún braut rifbein fyrr í sumar á æfingu bara með einhverju hóstakasti... en hún var líka með einhverja beinþynningu eða eitthvað... en vissi ekki að þetta væri hægt.

Ég tók nokkur hnerraköstin hérna í gær...  tókst að flæma alla í burtu úr stöðinni.... að vísu voru bara tveir að æfa....en samt..... og fólk var byrjað að koma frá hæðinni að ofan til að checka hvaða stórframkvæmdir væru í gangi hérna.... alveg agalegt... en ég er semsagt að vinna í worldclass í Orkuveitunni þessa viku og er mjög rólegt hjá mér.

 

Fékk fyndið símtal í gær:

 

Ég: “worldclass Orkuveitunni, góðan dag”

Einhver kall: “já blessaður, þú ert akkurat maðurinn sem ég þarf að tala við”

Ég að hugsa: (einhver klikkhaus að hringja eða verið að hringja í vitlaust númer)

Ég: “hvernig get ég aðstoðað þig”

Einhver kall: “já sko, nú ætlar maður að skella sér á eitt stykki nuddpott, en ég er í smá vandræðum.... sko ég var að spá í þarna Econa línuna frá Geneva, 15 stúta með 3,5 HP dælu og frost vörn.... eða Kauai með 2 Kw hitara, Ozonator og Gecko stýribúnað..... einnig leist mér vel á Tahiti pottinn með 40 stútum, 3,6 Kw hitara, botntæmingu og 100 Sq.Ft. Cyclonic síu....... með hverju mælir þú eiginlega með?

Ég hugsi: (okay, greinilega einhver að hringja í vitlaust númer)

Ég: “já... okay.... þarna..... hvert ætlaðiru að hringja”

Klikkhausinn: “nú worldclass auðvitað.... er þetta ekki worldclass.....þið vitið allt um þetta er þaggi.....geturu ekki gefið mér hlutlaust álit”

Ég hugsi: (ég mæli með uppblásna pottinum í Hagkaup.... 50 lítra, vatnsheldur, núll stúta, aðeins 8990kr...... heimski kall..... viltu ekki hringja líka í ísbúðina Álfheimum og fá þerra álit líka)

 

Þetta er að verða ansi krefjandi þetta afgreiðslustarf í worldclass... maður þarf að bæta við sig allskyns sérfræðiþekkingu til að geta þjónusta kúnnunum almennilega.

Síðan var mjög skrítin kona að æfa hérna í gær.... hún var bara ein í salnum og ég sit hérna við afgreiðsluborðið í tölvunni.... hún er búin að vera lyfta í 20 mín og við höfum ekki sagt orð við hvort annað.... þá allt í einu labbar hún í tæki nálægt afgreiðsluborðið og segir:

“Íslendingar eru rosalega óagaðir”

ég hugsi: (hvað er í gangi eiginlega)

ég: “......jaaaaá...... jú.... það er alveg rétt”

klikkkelling: tekur tvö sett og segir svo: “það skiptir rosalega miklu máli að vera agaður”.

Ég: “já..... jújú.... það skiptir miklu máli”

Klikkkelling: tekur tvö sett og segir svo: “ég held að uppeldið segir rosalega mikið til um hversu agaður maður verði”

Ég: “já...jújú... engin spurning”

Klikkkelling: tekur tvö sett og hlær svo og segir: “ég meina mamma mín er nú ekki dauð en hún var ekkert sérstök”

Ég hugsi: (hvað var pointið með þessu... hvað kemur því við hvort hún sé dauð eða ekki.... hvað er í gangi með þessa kellingu... á hvaða programmi er hún eiginlega)

Ég: “já.... hahaha”

Síðan labbaði hún bara út..... bara sátt við lífið og tilveruna... eins og hún sé bara alveg heilbrigð og fín.


» 83 hafa sagt sína skoðun

21.06.2005 20:52:31 / jonb

Blog... loksinsloksins

Vegna gríðarlegra eftirspurnar hef ég ákveðið að skelli inn eins og einu stykki færslu .... áður en póstþjónninn hrynur hjá mér :)

Hef ekki enn tekið ákvörðun um hvort ég ætli að halda þessu blog-i eitthvað áfram en það var nú bara hugsað tímabundið meðan ég var úti. En það er nú svo sem lítið mál að skella inn einni og einni færslu til að drepa tímann sérstaklega þegar ég er að vinna í baðstofunni eins og núna þar sem er lítið að gera.

En það gerðist einmitt nokkuð sérstakt atvik áðan.

Maður lendir stundum í því að hitta einn og einn sem maður hefur ekki hitt í langan tíma.... t.d  "hey... varst þú ekki í Árbæjarskóla"... eða í verstu tilfellum.. "hey...varstu ekki í Selásskóla", þá þarf maður virkilega að grafa djúpt í minninu til að muna eftir viðkomandi. En núna kom kona sem sló öll met út, ég sit hérna í góðum fíling í baðstofunni þegar kona kemur labbandi að mér ætlar að borga eitthvað í baðstofunni, ég segi henni að borga þarna inni, og þá segir hún "ertu ekki úr árbænum", ég sona jújú það passar og byrja að hugsa og nota útilokunaraðferðina, okay hún soldið eldri en ég þannig að hún var ekki með mér í skóla, ekki systir eða foreldri einhvers sem ég þekki, ekki kennari eða gangavörður í Árbæjar eða Selásskóla, ekki einhver sem vinnur í kringum Fylki...hmmm aðeins eitt sem kemur til greina, hlýtur að vera einhver stuðningsmaður Fylkis sem hefur séð glitta í mig á vellinum einhvern tímann... þá spyr hún mig "heituru ekki Jón Björgvin"... ég bara jújú og bíst við að næsta spurning sé hvort ég sé ekki í Fylki en neinei..... hún spyr mig næst: "varstu ekki á Árborg". Ég sona mjög hugsi, tók heilar 5 sekúndur að fatta hvað Árborg var, og þegar ég lokst mundi að það var gamli leikskólinn minn þá missti ég andlitið... "haaaaaa..... júúúú, það held ég....jújú það passar" sagði ég stamandi, "já ég er gamli leikskólakennarinn þinn" segir hún.... ertu ekki að grínast, hvernig gat hún munað eftir mér, það eru meira en 20 ár síðan ég var í leikskóla, ótrúlegt.... en skemmtilegt.... eða hvað... er ég búinn að breytast svona lítið á 20 árum...hmmmm nú er ég brjálaður.... neinei kannski er hún bara einhver sérfræðingur í að muna eftir fólki.. eða kannski var ég bara svona sérstakur krakki þegar ég var lítill... vonandi á góðan hátt, segjum það bara :)


» 67 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 14:24:07 / jonb

Orlando

Maettur til Orlando.

Ferdin gekk alveg eins og i sogu.... fyrir utan eitt smaatridi.... var tekinn af helv.. loggunni fyrir of hradan akstur... tannig ad tetta gekk frekar alveg eins og i biomynd... loggan var fyndin med asnalegan hatt en hann var alveg eins og klipptur ut ur biomynd... aetladi ad spurja hann hvort hann hafi leikid i einhverjum myndum en haetti vid tad... tetta var tad vel leikid hja honum.

En eg var tekinn a 82 milum/klst en hamarkshradinn er 70. Hann var ca. 25 minutur ad fylla ut tennan blessada mida sem var upp a 150 dollara. Veit samt ekki hvort eg se ad fara ad borga tetta..... forum a djammid a laugardaginn og tar lentum vid a einhverju spjalli vid loggu og eg spurdi hana ut i tad hvad gerdist ef eg borgadi ekki og hun sagdi bara ef eg vaeri med ameriskt okuskyrteini ta myndi tad detta ur gildi og sagdi ad liklega tyrfti eg ekkert ad borga tetta.... en madur tarf ad checka a tessu betur.. vill ekki vera ad ögra stora brodur.... teir gaetu skellt a okkur vidskiptabanni.... ta tyrftum vid ad bítta a Ficher og tad viljum vid auvitad ekki.

En annars er eg buinn ad hafa tad mjog gott herna hja Birni og Lilju... herbergisfelagi teirra atti afmaeli a laugardaginn og splaesti hun a limmu fyrir okkur og nokkra vini sina um kvoldid til Orlando..... fyndid ad hun komst ekki inn a stadi to tad voru adeins 25 min thangad til hun aetti afmaeli... meira ad segja 5 minutur... hun turfti ad bida tangad til klukkan var akkurat 12..... mjog serstakt.

A sunnudaginn kiktum vid sidan a strondina og nuna er eg i skolanum ad bida eftir teim en tau eru ad taka sidasta profid sitt og sidan aetlum vid ad skella okkur i mollid.

Sidan er bara heimferd a morgun sem eg er ekki alveg ad atta mig a en tad er mikil tilhlokkun ad hitta alla vini og vandamenn heima.... skal lofa ad reyna ad taka nokkra solargeisla med.... nenni ekki ad skrifa meira... sidasti sens ad na nokkrum geislum... gengur ekki ad koma heim eins og einhver næpa :P

kved ad sinni og næsta færsla verdur orugglega skrifud a klakanum.


» 94 hafa sagt sína skoðun

23.04.2005 05:56:49 / jonb

Allt tekur sinn enda

Jæja þá er komið að því.... kveðjustund.

Í dag(föstudag) kláraði ég prófin mín en er búinn að taka öll prófin í þessari viku og í dag endaði ég á því að taka fjögur próf. Var frá 9 um morguninn til 5 um daginn í prófum með klukkutíma pásu frá 12-1.

Nú er planið að fara til Orlando þar sem ég mun vera hjá Bjössa og Lilju fram á miðvikudag en þá eigum við flug heim.

Ætlaði ég að taka rútu til þeirra en þar sem tímasetningin var mér óhagstæð ákvað ég að leigja mér bíl og mun ég keyra í fyrramálið til Orlando og skila honum þar. Það kostaði mig 100 dollara sem er það sama fyrir rútuna þannig að þetta er allt í lagi.

Er búinn að vera vinna í því að redda leiðinni og er búinn að fá góðar útskýringar frá félaga mínum hérna og búinn að prenta út kort þannig að þetta ætti að reddast.... vonum það allavega..... samt aldrei að vita nema maður endi í Kaliforniu.... sem væri reyndar ekkert slæmt.

Var ég nú fyrir miklum vonbrigðum þegar ég hef verið að segja fólki að ég ætli að keyra.... komst að því að fólk hefur enga trú á mér.... skil ekki alveg hvað getur verið svona erfitt við að keyra þetta....bara spurning um að koma sér á interstate-ið og síðan finna rétta exitið.... eða er það ekki annars..... en það kemur í ljós.. þetta reddast einhvern veginn.

En annars er ég búinn að vera að kveðja alla strákana í allt kvöld og var það hægara sagt en gert.

Skrítið að vera kveðja fólk sem maður er búinn að vera umgangast í 7 eða 8 mánuði og vita það að maður á líklega aldrei eftir að sjá það aftur.Maður er búinn að eignast marga góða vini hérna og það var magnþrungið andrúmsloftið við kvaðningu margra þeirra...... segi ekki að tár hafi fallið.... en það komst nærri því J

En annars á ég alveg eftir að pakka... ætla að fara í það núna... alveg týpískt fyrir mig... kemur fyrir að maður er að gera hlutina á síðustu stundu.... en það reddast alveg... hefur alla vega gert það hingað til.Já og bíllinn sem ég fékk er Pontiac, Grand Am, sem er bara hin fínasta flík.... engin Súkka Swift að vísu enda ekki hægt að gera kröfur til þess.

En þá er bara að drífa sig í að pakka, leggja sig síðan aðeins, fylla kaffibrúsann, kveðja Mobile og síðan bruna til Orlando.


» 61 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 05:25:17 / jonb

soldier down

Ég talaði við hermanninn á föstudaginn og hvað haldiði......... ekkert mál að flýta prófinu.... bara hvaða dag vildi ég taka það spurði hann, minnsta mál, ekkert sjálfsagðara...... beið bara eftir því að hann prentaði út prófið fyrir mig........
en eins og ég sagði allt annar maður sem ég var að tala við enda föstudagur hjá honum og tími til að leggja niður vopn enda gerði hann sé loksins grein fyrir við hvern hann var að díla við..... tók reyndar 4 daga sem mér finnst vera svona í lengra lagi.... en það sleppur í þetta skipti.

Það þýðir að þessi vika verður soldið strembin... tek öll prófin og síðan eru nokkrir lausir endar sem á eftir að hnýta.
Einn af þeim er að tilkynna þjálfaranum að ég muni ekki koma á aftur.
Alveg í síðasta lagi en ég var reyndar búinn að tala við hann fyrir áramót um að það væru litlar líkur á því að ég kæmi næsta haust en þegar ég talaði við hann síðasta fimmtudag og bað um fund með honum fannst mér hann vera soldið hissa á því þannig að ég er soldið spenntur yfir að sjá viðbrögðin hjá honum... en fundurinn er klukkan 11 á morgun.

En mér kvíður mest yfir að fara kveðja allt liðið á föstudaginn..... það verður frekar skrítið.... að segja bless við ca. 60 manns sem ég er búinn að kynnast hérna.... er að hugsa um að segja bara að ég komi á næsta haust svo ég geti frekar sagt... "blessbless, við sjáumst í haust".... í staðin fyrir "blessbless, við sjáumst aldrei aftur"..... haha... neinei... þetta verður bara stemmning.....eða hvað....

» 60 hafa sagt sína skoðun

14.04.2005 06:00:37 / jonb

"You neeeeeeever walk alone"

Það er nú orðið ansi langt síðan maður gat montað sig af því að vera Liverpool aðdáandi.
En það breyttist í dag....loksins loksins.... nú spretta allir Liverpool aðdáendur upp úr skotgröfunum sem þeir hafa legið í síðustu 10 ár...... spurning hvað við náum að þrífast á þessu lengi..... allavega fram yfir sumarið og yfir næsta tímabil...... loksins er kominn tími á að þessir bannsettu ManU vitleysingar skelli sér í skotgrafirnar sem við Liverpool menn erum búnir að vera að vinna í síðustu ár.... orðnar engar smá framkvæmdir.... farið að minna á píramídana í Egyptalandi..... en nú er komið að Manchester mönnum að halda greftrinum áfram.

Nú verður bara sett Liverpool lagið "You never walk alone" í græjurnar og það verður bara haft á "repeat" næstu tvær vikurnar.

Annars er það að frétta að það er bara sól og 25 stiga hiti alla daga núna sem er bara gott mál..... ég er samt búinn að vera óttalegur sluggsi við að nýta mér það en það eru áform uppi um að breyta því.

Í gær þurftum við allir strákarnir í fótboltaliðinu að hjálpa til við að taka til eftir einhverja tónleika sem skólinn hélt í einni kirkju hér rétt hjá.
Var þetta í fyrsta skipti sem ég kem inn í kirkju hérna í Mobile þrátt fyrir að það séu mörg hundruð kirkjur hérna..... það eina sem meirihlutinn af fólki gerir hérna er að fara á McDonalds og í kirkju.......
en við komum þarna inn og þá voru tónleikarnir ennþá í gangi..... fannst þetta frekar fyndið.... þarna voru þessir ungu strákar að spila einhverja kristna tónlist.... og af og til stóð einn og einn upp og lyfti höndunum upp í loft og söng með.... svona eins og maður sér í bíómyndunum..... frekar fyndið.
Ég tók eftir því að ein kona þarna var mjög virk í að standa og syngja með og þegar við vorum að ganga frá eftir tónleikana var ég að bera einhvern hátalara út og þegar ég stíg út kallar þessi kona í mig og segir "that was a wonderful performance.... so wonderful..... no words can describe....blablabla....." og ég stóð þarna einn og félagi minn fyrir aftan hurðina í kastinu..... og konan hélt greinilega að ég hafi verið að syngja þarna.... og hún var eitthvað svo einlæg og góðleg að ég gat eiginlega ekki farið að leiðrétta hana..... sagði bara "ohhh thank you.... thank you very much" og hún var ennþá stopp og held að hún ætlaði að fara að segja eitthvað meira en ég meikaði þetta ekki.... snéri bara við og labbaði í burtu áður en hún fattaði að ég var ekki sá sem hún hélt ég væri........ en það er alltaf gaman að fá hrós, sérstaklega þegar maður á það minnst skilið....þá þarf maður mest á því að halda.... er það ekki annars, hljómar allavega vel.

Síðan var síðasta fótboltaæfingin okkar í kvöld.
Ég talaði við þjálfarann eftir æfinguna og spurði hann hvort við gætum ekki hist bráðlega og talað saman því ég er ekki ennþá búinn að segja honum endanlega að ég komi ekki á næsta ári. Sagði honum það samt svona nokkurn veginn fyrir jólafríið en hann hefur ekkert talað við mig um það eftir það.
Þá skildi hann það mjög vel enda hafði ég góð rök fyrir því og það var ekkert vandamál.... en samt fannst mér eins og það hafi komið honum á óvart þegar ég bað um fundinn áðan.... en við ákváðum að hittast á mánudaginn... það kemur í ljós þá.
En ástæðan fyrir því að ég kem ekki aftur eru aðalega námslega séð.... í fyrsta lagi eru þeir ekki með tölvunarfræði hérna og í öðru lagi finnst mér standardinn á náminu ekki vera nógu hár enda nemendurnir hérna langt í frá að vera með sama grunn og við höfum eftir stúdentinn. Gott dæmi um það er að rétt áðan... fyrir um hálftíma síðan var herbergisfélaginn minn að læra og kallar allt í einu á mig og segir " Jon, how do you calculate percentages"..... og ég bara svona haaaa....trúði ekki mínum eigin eyrum "what do you mean" segi ég og kíki á þetta hjá ... hann segir þá..... "how do you calculate 20 percent of 5,60" og hann var meira að segja með svarið.... vissi bara ekki hvernig á að reikna það.
Spáið í því að vera í háskóla og geta ekki reiknað svona dæmi.....hvað er það.



» 52 hafa sagt sína skoðun

12.04.2005 03:32:31 / jonb

17 dagar to go

Nú fer nú heldur betur að styttast í heimkomu. Er búinn að panta far heim þann 27. apríl og er lending áætluð á Keflavíkurflugvelli snemma fimmtudagsmorgun þann 28.
Planið er að fara til Bjössa og Lilju í Orlando föstudaginn 22.apríl og vera hjá þeim fram á miðvikudag en flugið er frá Orlando.

Prófin byrja reyndar ekki fyrr en 28.apríl en þar sem ég er vitlaus útlendingur fæ ég að sjálfsögðu sérréttindi. Er ég búinn að tala við alla kennarana mína og og var það ekkert mál hjá öllum nema einum. Alveg týpískt.... og það er að sjálfsögðu í Management... einhver dvergur að kenna mér sem heldur að hann sé voða hetja út að því að hann var í hernum í 20 eða 30 ár.
Ætla að tala við hann aftur á föstudaginn.... náttúrulega algjör klaufamistök hjá mér að tala við hann á mánudegi.... aldrei að byðja um undanþágur eða sérréttindi á mánudegi..... algjör grundvallarregla sem maður hefur lært eftir áralanga reynslu.... besti dagurinn er föstudagur.... það vita allir.... allir í svo góðu skapi þá.
En ef það virkar ekki þá held ég að maður verður bara að grípa til örþrifaráða og beita handalögmálinu.... víkingurinn á móti hermanninum.... það er nú auðveld glíma.

Er að horfa á í þessum skrifuðum orðum á Miss USA og þær sem eru eftir er Miss California og Miss North-Carolina.
Ekki tók ég eftir Miss Alabama í top 20 enda kannski ekki skrítið.... ekki mikið um föngulegar stúlkur í þessu fylki..... kannski hafa þau bara sent gaur í keppnina þar sem ekki hafi fundist kvenmaður undir 90kg.
En sigurvegari er........ Miss North Carolina..... hahaha.... þetta var soldið fyndið..... gat ekki betur séð en Miss California hafi haldið að hún hafi unnið..... hver annars stekkur upp með hendur upp í loftið eftir að hafa tapað..... nettur Zoolander í gangi.

En núna tekur bara við smá próflestur og þar sem maður hefur bara 17 daga til að nýta sér þennan elskulega dollara þá er bara spurning um að tæma eBay uppboðsvefinn og síðan Millenia mollið þegar maður fer til Bjössa og Lilju.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2005 06:15:45 / jonb

Þrumur og eldingar

Núna eru þessar þvílíku þrumur og eldingar.

Held ég hafi aldrei séð annað eins síðan ég kom út, er bara að bíða eftir því að rafmagnið detti út.

Himinninn er alveg upplýstur eins og sjá má á þessari mynd sem ég tók áðan.

Það eru svo mikil læti að það er eins og maður sé staddur í miðju stríði... þvílíkar bombur. Síðan er farið að flæða smá inn til okkar undir dyrakarminn en við erum búnir að redda því með handklæði.

Mér finnst það samt bara vera stemmning... veit það ekki en ég einhvern veginn tjúnast allur upp í svona veðri. Langar mest til að fara út að skokka eða í fótbolta eða eitthvað.

Held samt að ég sé ekkert að fara að gera það, sérstaklega eftir að ég heyrði einhvern segja að ein elding hafi hitt eina bygginguna hérna á campusnum..... sel það nú ekki dýrara...... örugglega einhverjar ýkingar.

En núna eru einhverjir "recruit" gæjar í heimsókn en ég sé nú ekki fram á að það geti verið einhverjar æfingar yfir helgina, völlurinn pottþétt alveg á floti.

Maður bara vonar að rafmagnið fari ekki af.... því það er alveg ömurlegt..... þá þyrfti maður kannski að fara að læra eða eitthvað álíka fáranlegt.

Þessi mynd er tekin úr dyragættinni minni og það er að sjálfsögðu niða myrkur úti en eldingarnar lýsa svona skemmtilega upp himinninn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2005 06:50:26 / jonb

Not again!!!

Dagurinn í dag var ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Hann byrjaði reyndar vel... frábært veður, glampandi sól og 24 stiga hiti.
Við ákváðum að fara á ströndina, ég og Þjóðverjarnir tveir.
Því lögðum við að stað klukkan 11:45 og eftir 45 mínútna akstur bilaði bíllinn.
Nákvæmlega sama gerðist og fyrir 6 vikum síðan þegar við vorum á leið til New Orleans.

Núna vorum við ekki með neinn síma á okkur og fastir á miðjum þjóðveginum.
Ég og Matthías byrjuðum að rölta og ætluðum að rölta að næsta Exit-i til að hringja.
Þegar við vorum búnir að labba í 10 mínútur sá ég einn bíl koma og rétti upp þumalinn meira í gríni en alvöru en viti menn haldiði ekki að gæjinn hafi stoppað fyrir okkur.

Manni er nú ekkert mjög vel við að húkka sér far eftir allar bíómyndirnar sem maður hefur horft á en maður bara krossaði puttana og vonaði að maður hafi ekki hitt á enn einn axarmorðingjann.

En þetta var ca. þrítugur gæji og virtist hann vera mjög fínn..... það fyrsta sem hann spurði okkur var hvort við vildum bjór eða sígó... við afþökkuðum og leist mér nú ekki á blikuna þegar hann teigði sig í bjórkassann og opnað einn bjór og skellti í sig.
Við báðum hann um að keyra okkur að næsta exit-i en það var alveg 10 mínútum frá..... sem betur fer fengum við far...... hann spjallaði við okkur og spurði síðan hvert við ætluðum að fara. Við sögðum Pensacola Beach og þá hló hann og sagði að við værum fyrir löngu farnir fram hjá henni.... þið eruð á kolvitlausri leið.... og eitthvað.... ég sagði nei það getur ekki verið..... hann sagði jú ég bý þar og veit alveg hvar það er..... mér leist ekkert á blikuna... hélt við værum komnir eitthvað út í rassgat.... en þá kom allt í einu Florida skilltið... og hann sagði...  úps.... sorry.... mér að kenna.... þetta er rétt hjá ykkur...blablabla..... hann vissi greinilega ekkert hvað hann var að gera... búinn að fá sér aðeins og marga í tána....

En síðan var hann að segja okkur frá bát sem hann á í Pensacola ef við hefðum áhuga og lét okkur fá nafnspjaldið sitt og eitthvað og sagði okkur að hringja ef hann gæti gert eitthvað fyrir okkur.... við þökkuðum bara pent fyrir okkur en ég held ég láti nú bátsferðina og aukaaðstoð vera.... fínn gaur samt.

En síðan fengum við einn strák til að sækja okkur og gekk það bara vel.
Þjóðverjarnir fóru síðan og drógu bílinn á viðgerðarverkstæði en þeir voru alvarlega að spá í að taka númeraplöturnar bara af og ýta honum í næsta skurð því þeir voru komnir með nóg af honum.


» 68 hafa sagt sína skoðun

28.03.2005 10:56:48 / jonb

Próf, djamm, strönd, afmæli, snilld

Þá er mikil og skemmtileg vika á enda komin.
Ætla ég hérna að reyna að rifja upp það helsta sem er búið að gerast síðustu viku.

Mánudag, þriðjudag og miðvikudag var ég í prófum þannig að það var vel við hæfi að fagna próflokar-törninni á miðvikudagsköldinu með því að kíkja út í léttan öl.
Fórum við um 25 krakkar úr fótboltaliðinu, karla og kvenna út á Hammerheads en þar er alltaf mikið djamm á miðvikudögum enda ekki skrítið þar sem öllarinn er á 25 cent eða 15kr íslenskar.
Þar var slett rækilega úr klaufunum og skemmti ég mér bara þónokkuð vel enda alltaf gaman að djamma eftir próf.

Fimmtudagurinn var bara rólegur og notaði maður bara daginn vel til að hvíla lúin bein og endurhlaða orkuna fyrir helgina.

Föstudagurinn var einn sá albesti síðan ég kom út til Ameríku.
Þá fórum við sami hópurinn og fórum út á miðvikudagskvöldið á ströndina í Pensacola sem er í um klukkutíma fjarlægð. Vorum við mætt um klukkan 11 og vorum til 5. Allan tímann var glampandi sól og 27°C og var vel slappað af með kaldan öl eða leikið sér í blaki eða sjónum eða öðrum leikjum.
Algjör snilld og þegar við vorum að keyra heim hef ég sjaldan verið jafn þreyttur. Eins og ég hafi spilað tvo fótboltaleiki enda steinsofnaði ég í bílnum. Um kvöldið kíkti ég eitthvað út í eitthvað party í skóla hérna rétt hjá með krökkunum. Það var svo sem ekkert sérstakt en ég var duglegur við að leika mér með myndavélina og má sjá afraksturinn á þessari slóð: http://www.fotki.com/jonsi/mars_2005/fstudagskvldi_25mars/

Laugardagurinn var rólegur en við kíktum nokkrir strákar aðeins í bæinn um kvöldið en það var frekar rólegt um að vera þar.

Á sunnudaginn var ég vakinn klukkan 9 og beðinn um að spila einhvern fótboltaleik. Um var að ræða einhverja Mexikana vitleysinga sem einn úr liðinu þekkti og vildu spila við okkur um einhverja 2 eða 3 kassa af bjór. Við fórum 12 strákar og keyrðum eitthvað. Það byrjaði að hellidemba og vorum við hættir við að spila. Ákváðum að horfa saman á USA-Mexico í sjónvarpinu og í hálfleik var komið fínt veður þannig að við ákváðum að fara út og spila leikinn. Var þessi leikur frekar mikið djók og endaði hann 30-0 fyrir okkur.

Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að ég átti afmæli fyrir ca. 4 klukkutímum síðan eða kl: 23:25 þann 27.mars. Því var haldin mikil afmælisveisla fyrir mig í kærkvöldi (sunnudag) og voru grillaðir hamborgarar og fékk ég skemmtilegt kort sem allir skrifuðu í og plaggat og einhverja körfu með einhverju dóti í... fótbolta og einhverju nammi og einhverju....

En án efa besta gjöfin sem ég fékk var frá snillingunum heima, þeim Hemma bró, Berglindi sister-in-law, Hörpu Karin frænku og írsk-ættaða setternum Dofra. Erum við að tala um Nóa-Síríus páskaegg nr. 6 og er ég ekki búinn að gera neitt annað en að háma í mig 550gr af súkkulaði í kvöld.... reyndar er ég ekki alveg búinn að klára það... búinn með kannski um 300gr.

Hefði ég ekki getað hugsað mér betri afmælisgjöf enda var maður virkilega farinn að sakna íslenska nammisins heiman frá. Án gríns þá get ég ekki borðað neitt nammi hérna... það er bara engan veginn að virka... ekki einu sinni hlaupið er að virka hérna.... það er bara eins og það vanti eitthvað í allt hérna... en sem betur fer get ég tekið gleði mína á ný núna með páskaegginu mínu.
Ætla ég sko ekki að fara monta mig af páskaegginu við aðra hérna því þetta egg er fyrir MIG og aðeins MIG.... veit að ég er eigingjarn en mér er alveg sama í þessu tilviki... oft er þörf nú er nauðsyn....

En held að það sé kominn tími á að skella inn nokkrum myndum.
Hérna eru myndir af ströndinni: http://www.fotki.com/jonsi/mars_2005/pensacola/
Og hérna frá föstudagskvöldinu: http://www.fotki.com/jonsi/mars_2005/fstudagskvldi_25mars
Og bara nokkrar af afmælinu: http://www.fotki.com/jonsi/mars_2005/afmli

Þar sem þetta blog.central kefri er í einhverju rugli þar sem heildarsvæði þeirra náði víst hámarki (32.000) þá næ ég ekki að setja inn myndir hérna inn né tengla. Geri það þegar ég get.



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2005 21:30:56 / jonb

If you don't like the weather wait 5 minutes

Ég afsaka blogleysi undanfarna daga.... eða vikur réttara sagt en vegna Anna hef ég ekki gefið mér tíma fyrir bloggið sem er auðvitað til háborinnar skammar.
Var í prófi í síðustu viku og í gær og í dag og síðan eitt á morgun og þá ætti ég að vera orðinn nokkuð góður í bili.

Í morgun var próf klukkan 11 og var ég að lesa undir það þegar þessi massa rigning og þrumur skullu á. Hef ekki heyrt önnur eins læti.... fannst eins og þrumurnar væru inn á klósetti hjá mér og þorði ég ekki að bursta í mér tennurnar og setja á mig maskarann í ótta við að hitta sjálfan djöfulinn sem var greinilega með þessa þvílíku ræpu á setunni.... eins gott að hann sturti niður á eftir sér því annars þarf maður að fara að fjárfesta í einangruðum latex galla og öflugri skóflu og hjólbörum.

En allavega þá fór ég í prófið með Þjóðverjunum á bílnum þeirra og tekur það ca. 6mín að keyra en 4mín að labba en vegna flóðhættu tókum við bílinn.
Síðan skellti maður sér í prófið sem gekk ágætlega og þegar ég kom út, 30 mín seinna, þá var bara allt í einu komin þessi glammpandi sól, ekki eitt ský á himninum og 27°C hiti.
Þvílík snilld..... en því miður get ég ekki notið blíðunnar í dag þar sem ég þarf að lesa undir próf.

Þegar komið var heim þorði ég loks á klósettið og sem betur fer hafði djöfullinn tekið vel til á eftir sér..... thank God for that.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2005 20:41:18 / jonb

Helgin

Snilldar helgi er ad baki.... forum i party a fostudaginn til einhverra Sviia vitleysinga i fotboltalidinu.

A laugardaginn for eg med Bjossa a aefingu med lidinu teirra og var tad mjog fint... gaman ad fa sma samanburd vid skolann minn.

Tegar aefingin var buin var brunad til Orlando tar sem vid skelltum okkur a hotel og sidan fengum vid okkur nokkra ollara og kiktum sidan i baeinn... vorum ekki lengi i baenum tvi eins og typiskir Islendingar forum vid ekki nidri bae fyrr en um eitt leytid og tad lokadi allt klukkan 2... en tad var samt mjog gaman og mikil stemmning.

A sunnudaginn var ferdinni svo heitid a Clearwater beach rett hja Tampa tar sem legid var i solinni i nokkra tima og sidan tokum vid einn leik i minigolfi tar sem Bjorninn lek oadfinnanlega og sigradi orugglega en Jon var annar en honum fannst hann eiga mikid inni og nokkud ljost ad hann a eftir ad hefna osigursins adur en ferdinni er lokid.


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2005 18:38:38 / jonb

Orlando

ta er madur maettur til Orlando.

Ferdalagid gekk bara nokkud vel, var reyndar nokkud throngt tar sem vid vorum 5 i bilnum i ca.9 tima...... en tad reddadist alveg.

En i dag er glampandi sol og ca. 22 stiga hiti.... aeltum ad kikja i mollid og tarf eg ad kaupa mer einhver fot tar sem farangurinn minn komst ekki fyrir i bilnum.... er eg bara med einar nariur og eitt sokkapar med mer.... sem gengur ekki alveg upp tegar vid aetlum ad kikja a djammid herna.

I kvold a sidan ad taka adeins a tvi og... veit ekki alveg pland en eg treysti Birni fullkomlega fyrir tvi ad vera med goda dagskra enda ekki tekktur fyrir neitt annad.


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 13:58:12 / jonb

einn dagur í springbreak

Það styttist óðum í springbreak-ið. Á morgun(fimmtudag) fer ég semsagt í heimsókn til Bjössa og Lilju í Orlando og ætla að eyða fríinu með þeim. Tilhlökkun í hámarki enda gott að fá smá frí frá Kananum og Þjóðverjunum og vera í góðra Íslendingavinahópi.

Síðasta helgi var svokölluð "recruit" helgi þar sem það voru um 25 strákar sem komu og verið var að skoða.
Við sem búum í cottage-um þurftum að hýsa þessa stráka og voru 2 strákar sem bjuggu í mínum cottage.
Leist mér ágætlega á strákana þegar þeir komu í cottage-inn þangað til annar þeirra byrjaði að baula eitthvað á þýsku við Þjóðverjana....... ekki enn einn Þjóðverjinn..... ussuss.... finnst nú alveg nóg að vera með 2 Þjóðverja hérna.... þegar þeir voru búnir að tala saman í 5mín var ég kominn með nóg.... hausinn á mér var alveg við það að springa.... dreif mig inn í herbergi til að halda í þá litlu geðheilsu sem eftir var.

En talandi um Þjóðverja.... þá setti annar Þjóðverjinn nýtt met síðastliðinn föstudag.... þeir eru alveg ótrúlegir þessir Þjóðverjar... slá hvert metið á fætur öðru...
Þannig var það að það átti að vera æfing á laugardagsmogun kl:8 þannig að föstudagurinn átti bara að vera rólegur hjá okkur. Ég spurði þá annan Þjóðverjann hvort við ættum ekki að kíkja í bíó.... hvað haldiði að gæjinn hafi sagt...... "no... it makes no sense.... I mean... it's maybe $7 for the movie and then maybe you buy something to eat for $3 so it's $10 just to see one movie.... I don't want to spend $10 just to see one movie..."

Hvað er að..... hvernig er hægt að vera svona ógeðslega nískur.... báðir Þjóðverjarnir eru á fullum skólastyrk hérna þannig að það er ekki eins og það séu mikil útgjöld hjá þeim..... og síðan týma þeir ekki að fara í bíó.... frekar gæfi ég annað viðbeinið mitt heldur en að vera svona ógeðslega leiðinlega nískt feitt fífl og fáviti....... neinei.... segi bara sona...... þeir eru ágætir..... bara soldið sparsamir.

Eitt sem ég þarf að gera áður en ég fer til Orlando er að fara í klippingu. Erum að tala um að ég hafi ekki farið í klippingu síðan í október. Held það hafi aldrei liðið jafn langur tími milli þess að ég hafi farið í klippingu áður.
En það er heldur ekki skrítið.... þið hefðuð átt að sjá mig síðast þegar ég fór í klippingu...... ég bað klippingakonuna um að snyrta aðeins lufsurnar mínum.... hún var ekki alveg viss um hvað ég meinti og benti á einhverja mynd á veggnum og spurði hvort ég vildi svona stutt.... ég sagði bara jájá.... síðan tók hún upp skærin...... og það var eins og hún væri að klippa runnabeð eða grasflöt eða eitthvað...... minnti mig á myndina þarna þar sem gaurinn var með puttana sem skæri... man ekki alveg hvað hún heitir.... en allavega þá byrjaði hún að klippa.... og þvílík ákefð og áreynsla.... hún bara klippti og klippti á þessum þvílíka hraða og hljóp í kringum mig allan eins og hún væri að reyna að slá eitthvað met í hraðklippingu.... og ég bara sat þarna og þurfti að hafa mig allan við að halda mér stöðugum í stólnum... og eftir ca. 4 mín þá snýr hún stólnum og þá birtist allt í einu þessi myndarlegi 13 ára fermingadrengur við mér..... minningarnar streyma um huga minn þegar ég leit á þennan strák og ég ljóma allur af gleði þegar ég minnist þess hvað það var gaman þegar maður var ungur og viltaus..... en þessi ljómi var ekki lengi að breytast í andstæðu sína þegar ég áttaði mig á því að ég var að horfa í spegil..... þvílík martröð.... hvað var þetta eiginlega... held ég hafi fæðst með meira hár á bringunni..... og merin sagði.... er þetta eitthvað í líkindum við það sem þú varst að tala um.....hvað átti ég að segja..... neiii ekki alveg.... geturu nokkuð byrjað upp á nýtt.....
Síðan þegar ég var að borga spurði afgreiðslukonan mig hvort ég væri í hernum...... það fannst mér ekki vera fyndið..... alveg til að toppa þessa skelfilegu klippingaferð..... spurning um að klippa sig bara sjálfur næst.

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6